Mér var einu sinni sama um álit annarra. Mér er það reyndar ennþá, en núna á ég fjölskyldu.
Hér fyrir neðan er forræðisdeilan. Ég notaði eigið nafn, eigin bloggsíðu og bjó til Jónínu Vilhelmsdóttur, fyrrverandi eiginkonu mína, sem bróðir minn bloggaði fyrir.
Við erum búin að vera skilin að borði og sæng í næstum sex mánuði núna. Sem þýðir, að öllu óbreyttu, að við fáum lögskilnað á næstu vikum. Ég veit ekki hvernig mér líður með það. Auðvitað hefur þetta verið hryllileg lífsreynsla, sérstaklega að fá ekki að hitta börnin nema tvisvar í viku. Þetta hefur líka verið hroðalegt fyrir þau, að verða vitni að þessum ágreiningi foreldra sinna. Ég óska engri fjölskyldu svo ills. Hún segist ætla að krefjast þess að fá íbúðina og bílinn, sem er náttúrulega yfirgengilegt. Maður er bara rúinn inn að skinni og getur ekkert gert. Lögfræðingurinn kostar líka morð fjár. Ef fram heldur sem horfir verð ég gjaldþrota eftir nokkra mánuði. Ég er búinn að segja henni það; að það myndi ekki koma neinum til góðs. Henni virðist vera alveg sama.
En ég reyni að brosa í gegnum tárin. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Verður maður ekki að hugsa einhvern veginn þannig?
Ég vil harma það að Ívar skuli bera einkamál okkar á torg með þessum hætti. Ég sá mig knúna til að svara þessum rógburði með þessari síðu. Maður sem vill láta taka sig alvarlega á að virða friðhelgi einkalífsins, því þetta er ekki bara einkalíf hans, þetta er ekki síður einkamál mitt. Og barnanna.
Já, þetta er búin að vera miskunnarlaus barátta, sérstaklega um börnin. En hann bauð upp á þetta sjálfur. Það var ekki ég sem henti lampanum í gluggann á Njálsgötunni. Og það var ekki ég sem kom full heim og rústaði eldhúsið með þvílíkum hávaða að nágrannarnir kölluðu á lögguna. Þetta er í rauninni sorglegt, því þessi maður, sem hreif mig með kímnigáfu sinni og rómantík, er bara skugginn af sjálfum sér. Þetta byrjaði fyrir u.þ.b. ári, að hann fór að koma oftar og oftar fullur heim, jafnvel í miðri viku. Sigga dóttir okkar var oft dauðhrædd við pabba sinn, þótt hann væri miður sín daginn eftir og grátbæði okkur fyrirgefningar. Svo, fyrir tæpu hálfu ári, var mælirinn fullur og ég sótti um skilnað. Og er hann hissa á því að hann fái ekki forræði yfir börnunum?
Ég veit ekki hvort ég á að vera að svara þessum ósannindum. Sennilega gerir það bara illt verra. Hvaða „rógburð“ er hún að tala um? Ég var bara að segja að þetta væri óskemmtileg lífsreynsla. Og svo býr hún til sögur um meintan drykkjuskap minn. Allir sem þekkja mig vita að ég umgengst áfengi af mikilli varkárni. Þetta er í rauninni svívirðilegt og eiginlega ætti ég að kæra svona aðdróttanir til lögreglunnar.
Er það ekki rógur að segja að hann sé rúinn inn að skinni af mér? Er það ekki rógur að segja að mér sé alveg sama? Ég hef ekki búið til neinar sögur, þetta með drykkjuskapinn er allt satt, það er ekkert einsdæmi að alkohólistar neiti að viðurkenna vandann. Hann getur sjálfum sér um kennt að bera þetta svona á torg, hann byrjaði og hann skal fá að finna fyrir fullum afleiðingum þess. Svo heldur hann áfram með rógburðinn og segir að ég sé að búa til sögur um hann. Ég vorkenni þessum gæja, hann er ömurlegur. Ég get sagt fleira um okkar samskipti, miklu fleira. Kærðu bara til lögreglunnar, ég get LÍKA kært. Ég get líka farið yfir allt saman, málið með kommóðuna og málið með verslunarferðina til Dublin. Svona menn eru ekki svara verðir. Satt að segja ætti einhver vinur hans að tala við hann og stoppa hann. Ég mun ekki hætta.
Þetta er orðið frekar lágkúrulegt, jafnvel á þinn mælikvarða Jónína. Maður er bara orðinn alkóhólisti og aumingi. Vonandi sefurðu vel í nótt vinan. Ég ætti kannski að rifja upp ferðina til Akureyrar síðasta sumar, eða uppákomuna eftir jólaboðið hjá mömmu og pabba? Þú hlýtur að vera frekar desperate fyrst þú ert farin að breiða út sögur um að ég sé alki. Þú ert aumkunarverð.
Hér kemur yfirlýsing frá nýja unnustanum mínum, Guðmundi:
Að beiðni Jónínu hef ég samþykkt að staðfesta nokkur atriði í þessari stuttu yfirlýsingu. Ég vil ekki blanda mér meira í þessi mál en þörf krefur og eðlilegt þykir. Ívar Páll hefur þó með framferði sínu gefið tilefni til þess að ég riti nokkur orð.
Ég hef sjálfur, persónulega, orðið vitni að umræddum drykkjuvenjum Ívars Páls Jónssonar. Einnig hef ég átt samtöl við börnin þar sem mér þykir hafa í ljós komið viss hræðsla við föður sinn eftir hamagang undanfarinna missera. Ekki mun ég fara nánar í það til að spilla ekki fyrir hugsanlegum málaferlum af þeim sökum. Ég get þó sagt að ég hef séð til mannsins fara illa með innanstokksmuni auk þess sem að ég sá hann hrinda Jónínu á skáp. Ekki fæ ég skilið hvernig hægt er að koma fram af slíkri grimmd við jafn yndislega konu og Jónína er, það hlýtur að vera eitthvað rotið í dýpstu hugarfylgsnum manns sem fær sig til slíkra verka. Jónína er skynsöm og góð kona sem myndi aldrei fara með ósannindi. Auk þess sýnir hún frábærum börnum sínum hlýju og athygli.
Meira vil ég ekki segja í þessu máli að svo stöddu.
Hefur þá ekki mannvitsbrekkan og snillingurinn Guðmundur Þór Jónsson kvatt sér hljóðs. Það var svosem ekki við öðru að búast af þeirri mannleysu. Ég skora hérmeð á hann að mæta mér fjarri alfaraleið og við skulum láta hnefana tala. Ég efast reyndar um að hnefarnir á honum geti mikið talað, enda er hann getulaus aumingi. Mér þykir leitt að þessi deila skuli vera komin á þetta stig, en það er ekki fyrir tilstilli mitt.
Ég vil bara vekja athygli á hótunum Ívars Páls um ofbeldi sem koma fram á síðunni hans. Hér getið þið séð sjálf hvernig hann er í rauninni: http://www.minimalstate.com/ivar Þarna vill hann fá Guðmund Þór í slagsmál og kallar hann illum nöfnum og er með einhvers konar lélega brandara. Þetta sýnir hans RÉTTA mann.
Jæja, þá er ég búinn að semja og hljóðrita lagið Jónína – þú færð aldrei forræðið. Ég mæli með því að fólk stilli á maximum volume þegar það hlustar á þetta lag. Hérna er textinn, ef einhver vill raula með:
Jónína – þú færð aldrei forræðið
Jónína, þú færð aldrei forræðið Jónína, þú færð bara harðræðið Jónína, þú færð bara Guðmund Þór.
Hafi einhver verið í vafa, hafi einhver verið í vafa um að Ívar Páll væri alvarlega geðveikur, þá getur hann fengið svarið á síðunni núna. Hann hefur samið einhvers konar pönklag um forræðisdeilu okkar.
Þetta er leðjuslagur, það er dapurlegt að maðurinn skuli vera búinn að fara með þetta svona lágt.
From: “Uksabani” | Block Address | Add to Address Book To: ipj@hi.is Date: Thu, 2 Aug 2001 09:54:52
Þú ert nú meiri helvítis hálfvitinn Ívar. Djöfulsins viðbjóður og aumingi. Hvaða pervert ertu að skrifa svona um það sem kemur bara þér og Jónínu við. Ekki þykjast vera voða hissa þegar einhver hamrar þig niður einn daginn, alkóhólistinn þinn. Basket case motherfucker. ______________________________________________________ Get Your Private, Free Email at http://www.hotmail.com
From: “xxxxx Már Sigurðsson” | Block Address | Add to Address Book To: ipj@hi.is Subject: HallóHalló! Date: Thu, 2 Aug 2001 13:18:48 -0000
Ertu sjúkur?!? hvað ert þú að pæla!?!? Af hverju ekki að heyja þessa forræðisdeilu einsog allir aðrir gera það en ekki skella henni á netið? Þetta er versta dæmi um algert basket case sem ég veit um! ég vil minna þig á lagið Basket case með Green Day
Ég vil lýsa yfir ánægju minni með tölvupóstinn sem kvikindið hefur fengið að undanförnu. GOTT HJÁ ÞÉR xxxxx Már!!! Ég vil hvetja alla þá sem hafa óbeit á framferði Ívars Páls (sem ég veit að eru fjölmargir) til að senda honum harðorðan tölvupóst. Búið ykkur samt undir það að hann birti póstinn á síðunni sinni. Netfangið hjá honum er: ipj@hi.is (háskólarotta). Netfangið hjá mér er Jonina25@hotmail.com. Gaman væri að fá stuðningsyfirlýsingar og ef þið viljið birti ég þær hér á síðunni. ALLT FYRIR BÖRNIN!!!!
Núna er hún farin að hvetja fólk til að senda mér harðorðan tölvupóst. Eins og ég hafi ekki orðið fyrir nógu ónæði og rógburði að undanförnu.
Til dæmis hefur þessi kona verið að hringja í mig á nóttunni og ræða málið við mig á móðurlegan máta. „Hvernig heldurðu að börnunum líði Ívar Páll minn?“ „Hefurðu hugsað nógu vel um framtíðina?“ Bla bla bla. Kæri mig ekki um þetta. Hún virðist hins vegar ekki átta sig á því að ég er með símanúmerabirti. Má ég kynna: Margréti Jónsdóttur.
From: “xxxxx x. xxxxdóttir” xxxxx.xxxxxxxxxx@lais.is To: ipj@hi.is Sent: Friday, August 03, 2001 14.08
..þetta er komið út í algjöra vitleysu hjá ykkur-þú ert engu betri en hún með því að vera með skítkast á vefnum og fólk er bara hlæjandi að ykkur -ef þú virkilega ert að hugsa um börnin þá leysið þið þetta mál ykkar á milli.
Mér hefur borist stuðningsyfirlýsing sem markar tímamót í þessari deilu:
From: asbjornthormundsson@hotmail.com | Block Address | Add to Address Book To: ipj@hi.is Subject: Stuðningsyfirlýsing! Date: Fri, 3 Aug 2001 14:05:59 -0000
Sæll Ívar
Ég er búinn að vera að fylgjast með deilu ykkar Jónínu á netinu og get ekki annað en stutt þig. Einhverjir vitleysingar úti í bæ hafa verið að styðja hana og fundist rangt að vera að færa þessa deilu út á netið. Auðvitað var það Jónína sem færði hana út á netið á neikvæðan hátt með dylgjum í þinn garð – sem er augljóslega mjög slæmt fyrir börnin.
Ég þekki fólk sem þekkir þig og veit að þú ert bindindismaður af guðs náð. Ég fullyrði að þú hefur aldrei bragðað áfengi, öfugt við Jónínu sem hefur verið fastagestur á Kaffi Austurstræti um nokkurt skeið, en þar kynntist hún einmitt Guðmundi. Oftar en ekki þegar ég hef verið að gangi niðri í bæ um hádegið hef ég rekist á þau skötuhjú í mjög annarlegu ástandi bókstaflega ofan í ræsunum. Þau eru engan vegin í stakk búin til þess að hugsa um börnin.
Börnin heim – Börnin í hlýjuna – Börnin til Ívars Páls!
Ég get sagt það af fullri sannfæringu að vináttu okkar Guðmundar Þórs er lokið. Hann hefur vægast sagt ekki komið fram eins og vinur minn í þessu máli. Látum vera að hann „steli“ frá mér eiginkonunni (þótt þau hafi ekki byrjað saman, a.m.k. ekki opinberlega, fyrr en 2 mánuðum eftir skilnaðinn), en framkoma hans í forræðisdeilunni nær ekki nokkurri átt. Svona tapar maður þá æskufélaga.
Ég vil þakka þann stuðningspóst sem ég hef fengið í forræðisbaráttunni við fyrrverandi manninn minn. Það er auðvitað erfitt að hengja út óhreina þvottinn svona fyrir alþjóð en Ívar gaf mér engra kosta völ. Þessi barátta hefur þjappað okkur Guðmundi og börnunum mínum saman. Þessi óskemmtilega lífsreynsla hefur þó valdið því að ýmislegt hefur komið upp úr krafsinu sem ég hefði viljað vitað fyrr. Móðir mín sagði mér t.d. frá því að hún hefði víst séð þig NJÓSNA um hana þegar hún var að skipta um föt fyrir nokkrum mánuðum. Svo sendi vinnufélagi hans Ívars mér póst og sagði mér að hann stundaðir að skoða klámefni á internetinu og að vinnufélagar hans væru orðnir þreyttir á endalausum póssendingum með allskonar klámi og subbuskap. Þetta tvennt kom mér í opna skjöldu. Ég vil biðja Ívar um að hætta samstundis að viðra okkar einkamál á internetinu (!) annars mun ég opna fyrir flóðgáttina og segja alþjóð allar staðreyndirnar um fyrrverandi mann minn og hann getur þá treyst því að ég mun þá taka af mér hanskana. Gerðu það Ívar, fyrir börnin og Guðmund, besta vin þinn, og mig að hætta þessu strax.
Svo virðist vera að ég hafi verið blekktur. Ég gáði í þjóðskrá og þar var enginn Ásbjörn Þórmundsson! Þetta sýnir klárlega kosti og galla netsins. Annars vegar auðveldar tölvupósturinn mönnum að hafa samskipti, en hins vegar gerir netið þeim auðvelt að villa á sér heimildir og koma fram undir fölsku flaggi. Það er fyrirlitleg og smánarleg framkoma. Ég vil biðja lesendur mína afsökunar.
Sameiginleg yfirlýsing Jónínu Vilhelmsdóttur og Ívars Páls Jónssonar
Við undirrituð, Jónína Vilhelmsdóttir og Ívar Páll Jónsson, lýsum því hér með yfir að við höfum náð sáttum í deilu þeirri sem við höfum m.a. háð á opinberum vettvangi. Við höfum gert okkur ljóst, að forræðisdeilur eiga að vera einkamál viðkomandi einstaklinga, ekki síst ef velferð barnanna á að vera höfð að leiðarljósi. Einnig biðjumst við afsökunar á að hafa dregið Guðmund Þór, þann mæta dreng, inn í þessa hatrömmu deilu sem við sjáum nú eftir að hafa komið af stað. Þá viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur vinarþel og látið málið sig varða, m.a. með því að senda tölvupóst. Það er ekki síst ábendingum ykkar að þakka að við höfum áttað okkur á að hagur barnanna á að vera í fyrirrúmi. Með vinarþeli,
Sameiginleg yfirlýsing Jónínu Vilhelmsdóttur og Ívars Páls Jónssonar
Við undirrituð, Jónína Vilhelmsdóttir og Ívar Páll Jónsson, lýsum því hér með yfir að við höfum náð sáttum í deilu þeirri sem við höfum m.a. háð á opinberum vettvangi. Við höfum gert okkur ljóst, að forræðisdeilur eiga að vera einkamál viðkomandi einstaklinga, ekki síst ef velferð barnanna á að vera höfð að leiðarljósi. Einnig biðjumst við afsökunar á að hafa dregið Guðmund Þór, þann mæta dreng, inn í þessa hatrömmu deilu sem við sjáum nú eftir að hafa komið af stað, þótt hún hafi að mestu leyti verið sök Ívars Páls. Þá viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur vinarþel og látið málið sig varða, m.a. með því að senda tölvupóst. Það er ekki síst ábendingum ykkar að þakka að við höfum áttað okkur á að hagur barnanna á að vera í fyrirrúmi. Með vinarþeli,
Nú er mér öllum lokið. Mér hefur verið bent á að Jónína breytti sinni útgáfu af sameiginlegu yfirlýsingunni sér í hag! Þessari konu er ekki við bjargandi. Hún er óforbetranleg. Hvernig dettur henni í hug að breyta textanum, sem á að lýsa yfir sameiginlegum vilja okkar?!? Sáttayfirlýsingu sem hafði hag barnanna að leiðarljósi!!!! Þið sjáið yfirlýsinguna í sinni réttu mynd hér fyrir neðan, en þar stendur: „…inn í þessa hatrömmu deilu sem við sjáum nú eftir að hafa komið af stað.“. Aftan í þessa setningu hnýtir hún: „, þótt hún hafi að mestu leyti verið sök Ívars Páls.“ Þetta er óútskýranlegt. Konan er gengin af göflunum. Hvernig á að eiga samskipti við svona manneskju?
Við birtum sameiginlega yfirlýsingu þar sem við sögðum að við ætluðum að hætta þessu karpi á netinu fyrir hag barnanna. En hvað gerir Ívar Páll þá? HANN HELDUR ÁFRAM!! Það er greinilegt núna að það er ekki hann sem ber hag barnanna fyrir brjósti! Sjáið bara það síðasta þar sem hann gengur af göflunum vegna þess að ég bætti texta við sameiginlegu yfirlýsinguna. Það er rétt að ég bætti texta við og kannski hefði ég átt að birta hann sérstaklega en ekki inni í sameiginlegu yfirlýsingunni. En það eina sem ég bætti við var að deilan hefði verið að mestu leyti sök Ívars Páls. Það er SANNLEIKURINN. Hann getur ekki mótmælt því. Þar að auki er fáránlegt að taka þessu með þessum hætti þegar við erum búin að tala um og lýsa yfir að við ætlum að hætta.
Það er ekki hægt að rökræða við þessa manneskju. Hún segist hafa breytt yfirlýsingunni vegna þess að breytingin hafi verið í samræmi við sannleikann. I rest my case. Í þessari stöðu er við hæfi að minna hana á gluggaþvottamanninn. Ég hef verið að geyma hann, en það gæti farið að líða að því að ég dragi hann fram í dagsljósið.
Ívar Páll, við verðum að hugsa um börnin. Það er kominn tími til þess að við hættum þessu karpi. Ég er búin að breyta yfirlýsingunni aftur. Núna er hún eins og við samþykktum að hafa hana. Hérna er hún:
Sameiginleg yfirlýsing Jónínu Vilhelmsdóttur og Ívars Páls Jónssonar
Við undirrituð, Jónína Vilhelmsdóttir og Ívar Páll Jónsson, lýsum því hér með yfir að við höfum náð sáttum í deilu þeirri sem við höfum m.a. háð á opinberum vettvangi. Við höfum gert okkur ljóst, að forræðisdeilur eiga að vera einkamál viðkomandi einstaklinga, ekki síst ef velferð barnanna á að vera höfð að leiðarljósi. Einnig biðjumst við afsökunar á að hafa dregið Guðmund Þór, þann mæta dreng, inn í þessa hatrömmu deilu sem við sjáum nú eftir að hafa komið af stað. Þá viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur vinarþel og látið málið sig varða, m.a. með því að senda tölvupóst. Það er ekki síst ábendingum ykkar að þakka að við höfum áttað okkur á að hagur barnanna á að vera í fyrirrúmi. Með vinarþeli,
Einhvern veginn datt mér í hug að Jónína myndi vilja slíðra sverð sitt um leið og gluggaþvottamaðurinn kæmi inn í málið. Ætli ég láti það ekki eftir henni að grafa stríðsöxina.
En þótt það andi köldu milli okkar núna var einu sinni heitt í kolunum. Til dæmis samdi ég lag til hennar á sínum tíma. Það er að finna á heimasíðu Cartlands á mp3.com og heitir Romantic Berlin.
Þegar forræðisdeila mín við fyrrum eiginkonu mína, Jónínu Vilhelmsdóttur, stóð sem hæst, samdi ég nokkur lög henni til höfuðs. Flestir kannast við lagið Jónína – þú færð aldrei forræðið, en nú hef ég ákveðið að bjóða lesendum að hlýða á annað lag sem ég samdi á þessum tíma. Það kallast Ég heiti Jónína Vilhelms.
Síðan sameiginlega yfirlýsingin kom fram hefur mér ekki fundist vera nein ástæða til að halda þrætunni áfram. Við komumst að ákveðnu samkomulagi og ég verð að gera mér það að góðu, alveg eins og Ívar Páll. En núna, eftir allan þennan tíma, virðist hann vera að fá einhverja bakþanka. Það kraumar eitthvað undir. Núna var hann að setja annað lag á netið. Ef einhver efaðist um að maðurinn væri sjúkur á geði á sínum tíma ætti sá vafi að vera algjörlega horfinn. Þetta lag er viðbjóður. Hvaða kerlingarræksni hefur hann fengið til að syngja með sér í þessari hraksmíð? Hvaða kona lætur leika svona með sig? Ég bara spyr.
Æ, er nú þetta helvíti að byrja aftur. Ég vil ekki rífast við þig opinberlega, Jónína! Þótt ég setji smávegis lagstúf á netið. Þú virðist ekki geta látið kyrrt liggja. Þú ert manísk. Ekki orð um það meir.
Að gefnu tilefni tek ég fram að ég mun ekki skrifa meira um Jónínu Vilhelmsdóttur á opinberum vettvangi. Þessum skrípaleik verður að linna.
Annars er það merkilegt að Jónína virðist fylgjast ansi vel með því sem ég skrifa hérna á síðuna. Kannski er það merki um ákveðna þráhyggju?
Ívar Páll, ég hélt að við ætluðum að hætta þessu. Þú heldur samt áfram. Ég leyfði þér að fara með börnin til Eyrarbakka í vetur, í von um að það myndi lægja einhverjar öldur. En það blundar eitthvað í þér alltaf. Þú ert alltaf eins. Þú getur ekki hætt. Þú heldur alltaf áfram og áfram. Þetta er nákvæmlega eins og þegar þú vildir að við losuðum okkur við hreingerningarkonurnar. Það tolldi enginn í starfinu. Guði sé lof að börnin búa ekki lengur á sama heimili og þú. Ekki vil ég að þau læri þessa áráttu þína. Guðmundur Þór hefur verið góður faðir. Hann er faðir þeirra.
Sævar minnist á atvik í mínu lífi sem ég ætlaði ekki að ljá máls á í þessari umræðu. Þetta hafa verið erfiðir mánuðir og það er rétt hjá Sævari; ég er á barmi einhvers óskilgreinanlegs hyldýpis. Framkoma Jónínu er ekki til að bæta sálarástand mitt. En ég skal ekki láta hana komast upp með að stjórna lífi mínu.